miðvikudagur, júlí 28, 2004

aaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaa!!!!!!

Eitthvað til að missa vatnið yfir

Mér er fyrirmunað að láta þessa rafeindakassa virka rétt!!! Reyndi í heila 3 tíma í gærkvöldi að download-a nauðsinlegu forriti í kassaræsknið ( að sögn sérfræðinga ) og ekkert gekk. Jú hr. Reikningur Hlið lét sko aldeilis á sér kræla með gula og rauða spjaldið og mér, í sífellu hent í sturtu. Jæja nú er kominn nýr dagur og það þýðir víst ekki að reyta hárið lengur, enda er það löngu búið og ég byrjaður á pungsa... það er bara svo helv.. vont. Nú hefur tímaglasinu verið snúið við og nóg af sandi til að spreða í þessa endlausu baráttu við rafeindir!! jæja over and out.. p.s. kann einhver að setja inn linka á svona síðu..?   

þriðjudagur, júlí 27, 2004

Jah skoh nú er það svart...

Þar fór það... hugsanir komnar af blaði yfir á skjá, sem heldur að hann sé sjónvarp. En hvað get ég sagt? það er ekki honum að kenna að einhverjum Reikning Hlið datt í hug að troða þessu upp á alsaklausan og sótsvartann almúgann. Við erum bara sökkerar fyrir nýjungum hvursu heimskulegar sem þær eru... Ef Rekningur myndi kynna nýja byltinga kennda uppgötvun sem væri virtual sokkar þá myndu allir fara út í BT og versla þá... Manni er skítkallt í þeim ... en þetta er samt nýjasta tækni. Ó well... jæja en hver er svo breytingin, jú í stað þess að vera illt í puttonum og vera pirraður yfir að skilja ekki eigin skrift, þá er maður á barmi synaskeiðsbólgu og kominn með bauga, sem gætu auðveldlega verið girtir niðrí naríur, af stanslausu og árásagjörnu pikki á lyklaborð hannað af Reikningi Hliði. En nóg af pólitík ég er farinn í draumalandið á vit takmarkalausrar ýmindunar... er einhver hér? ekki ég allavega
gúd bæ

maximilius